Dröfn til Stjörnunnar

Dröfn Haraldsdóttir.
Dröfn Haraldsdóttir. mbl.is/Kristinn

Markvörðurinn Dröfn Haraldsdóttir er gengin í raðir bikarmeistara Stjörnunnar frá Val og er henni ætlað að fylla skarð Hafdísar Renötudóttur sem á dögunum samdi við danska liðið Sönd­erjyskE.

Dröfn, sem er 26 ára gömul, gekk í raðir Vals í janúar og lék 11 leiki með Hlíðarendaliðinu í Olís-deildinni en þar áður lék hún með FH og ÍBV. Hún á að baki 9 leiki með A-landsliðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert