Stórleikur Ólafs dugði skammt

Ólafur Bjarki Ragnarsson.
Ólafur Bjarki Ragnarsson. Ljósmynd/handball-westwien.at

Ólafur Bjarki Ragnarsson átti stórleik fyrir West Wien þegar liðið tapaði á útivelli fyrir Schwaz, 33:26, í austurrísku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld.

Ólafur Bjarki skoraði 8 mörk fyrir West Wien og var markahæstur hjá liðinu, en Viggó Kristjánsson minnti einnig á sig með þrjú mörk. Staðan í hálfleik var jöfn, 14:14, en ekkert gekk eftir hlé hjá lærisveinum Hannesar Jóns Jónssonar hjá West Wien.

West Wien er með 18 stig eftir 15 leiki og situr í fjórða sætinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert