Guðmundur hafði betur gegn Degi

Guðmundur Þ. Guðmundsson og Dagur Sigurðsson.
Guðmundur Þ. Guðmundsson og Dagur Sigurðsson. mbl.is/Golli

Guðmundur Guðmundsson stýrði liði Barein til sigurs í vináttulandsleik liðsins gegn lærisveinum Dags Sigurðssonar í Tókýó í Japan í morgun. Lokatölur urðu 21:20 í spennandi leik.

Þjóðirnar mætast einnig á morgun í öðrum vináttuleik en um er að ræða undirbúning beggja liða fyrir Asíumótið sem fram fer í Suður-Kóreu sem hefst 18. janúar.

Þetta er í fjórða skiptið sem Dagur og Guðmundur etja kappi sem landsliðsþjálfarar en þeir mættust einnig um jólin í vináttuleik í Póllandi með sömu lið. Þá vann Barein stórsigur. Áður höfðu þeir mæst er Guðmundur stýrði liði Íslands gegn Austurríki. Þá mættust þeir einnig er Dagur þjálfari Þýskaland og Guðmundur Danmörku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert