Stórsigrar hjá Guðmundi og Degi

Guðmundur Þórður Guðmundsson og Dagur Sigurðsson.
Guðmundur Þórður Guðmundsson og Dagur Sigurðsson. mbl.is/Golli

Guðmundur Þórður Guðmundsson og Dagur Sigurðsson stýrðu liðum sínum, Barein og Japan, til sigurs í dag í fyrstu umferð Asíukeppninnar í handknattleik sem fram fer í  Suwon í Suður-Kór­eu.

Barein, undir stjórn Guðmunar, vann stórsigur gegn Ástralíu, 33:10. Ástralar skoruðu aðeins fjögur mörk í síðari hálfleik en staðan eftir fyrri hálfleikinn var, 12:6. Barein mætir Óman í seinni leik sínum í riðlakeppninni á laugardaginn.

Dagur og lærisveinar hans í Japan unnu öruggan sigur gegn Úsbekist­an, 38:27, eftir að hafa verið yfir í hálfleik, 19:12. Síðari leikur Japans í riðlinum verður gegn Íran.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert