Þægilegt hjá toppliði Vals

Díana Dögg Magnúsdóttir átti góðan leik.
Díana Dögg Magnúsdóttir átti góðan leik. mbl.is/Árni Sæberg

Valskonur áttu ekki í miklum vandræðum með að vinna Selfoss í Olísdeild kvenna í handbolta í Valshöllinni í dag, 30:14. Staðan í hálfleik var 13:7 og voru Valskonur með forystu frá upphafi til enda.

Díana Dögg Magnúsdóttir skoraði átta mörk fyrir Val og Diana Satkauskaite gerði sex. Anna Úrsúla Guðmundsdóttir skoraði þrjú mörk í fyrsta leik sínum fyrir Val í nokkur ár. Perla Ruth Albertsdóttir skoraði fjögur fyrir Selfoss. 

Með sigrinum náði Valur þriggja stiga forskot á toppi deildarinnar en Selfoss er í 6. sæti með fimm stig og í fallbaráttu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert