Alvarleg tíðindi fyrir Val? - Beinmar hjá Ými

Ýmir Örn Gíslason, Val.
Ýmir Örn Gíslason, Val. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Landsliðsmaðurinn Ýmir Örn Gíslason lék ekki með Val gegn FH í Olís-deildinni í handknattleik í kvöld vegna hnémeiðsla. 

Ýmir fékk slæmt högg á hnéð á dögunum og hann tjáði mbl.is í kvöld að talið væri að um beinmar væri að ræða. 

Hann á þó eftir að fá formlega greiningu á meiðslunum og veit því ekki hversu lengi hann þarf að vera á sjúkralistanum. 

Nú þegar nokkuð er liðið á keppnistímabilið þá gætu þetta verið alvarleg tíðindi fyrir ríkjandi Íslandsmeistara því Ýmir er mikilvægur hlekkur í liðið og mjög klókur varnarmaður. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert