Stefán Rafn og félagar fylgja meisturunum

Stefán Rafn Sigurmannsson.
Stefán Rafn Sigurmannsson. mbl.is/Þórður

Stefán Rafn Sigurmannsson var í stóru hlutverki hjá liði sínu Pick Szeged sem fyrr þegar liðið vann öruggan útisigur gegn Eger, 33:24, í ungversku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld.

Stefán var sérstaklega áberandi í byrjun leiks þegar hann skoraði þrjú af fyrstu 10 mörkum Pick Szeged, en staðan í hálfleik var 20:14 fyrir Stefán Rafn og félaga. Munurinn jókst svo enn frekar eftir hlé og endaði með risasigri Stefáns Rafns og félaga, 33:24.

Stefán Rafn skoraði alls fjögur mörk fyrir Pick Szeged, sem fylgir meistaraliði Veszprém eins og skugginn. Tveimur stigum munar á liðunum í efstu tveimur sætunum en Veszprém á hins vegar tvo leiki til góða á Stefán Rafn og félaga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert