12 íslensk mörk í góðum sigri

Viggó Kristjánsson hefur spilað vel á leiktíðinni.
Viggó Kristjánsson hefur spilað vel á leiktíðinni. Ljósmynd/EXPA/ Sebastian Pucher,West Wien

West Wien hafði betur gegn Bregenz, 29:22, í úrslitakeppninni um austurríska meistaratitilinn í handknattleik í kvöld. Íslendingar voru áberandi hjá West Wien því Viggó Kristjánsson skoraði sjö mörk og Ólafur Bjarki Ragnarsson gerði fimm mörk. Hannes Jón Jónsson þjálfar liðið.

Leikurinn var liður í úrslitakeppninni í Austurríki, en í henni fara fimm efstu lið deildarinnar og keppa heima og heiman sín á milli um Austurríkismeistaratitilinn. West Wien er í 4. sæti riðilsins með 13 stig, fimm stigum á eftir toppliði Hard. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert