Fram hirti toppsætið af Val

Kristín Guðmundsdóttir, leikmaður Vals, sækir á Hildi Þorgeirsdóttir, leikmann Fram, …
Kristín Guðmundsdóttir, leikmaður Vals, sækir á Hildi Þorgeirsdóttir, leikmann Fram, í leik liðanna í kvöld. mbl.is/Kristinn Magnússon

Framarar hirtu toppsæti Olísdeildar kvenna í handknattleik með því að vinna Valsara 23:19 í 19. umferðinni í Framhúsinu í kvöld. 

Liðin fóru hægt af stað og var staðan til að mynda 1:1 eftir átta mínútna leik en mikið var um slæmar sendingar og ákvarðanir í sóknarleik beggja liða. Framarar tóku svo frumkvæðið og voru yfir allan fyrri hálfleikinn, mest þremur mörkum, en staðan í hléi var 9:8.

Í síðari hálfleik var leikurinn í járnum lengst af en áfram einkenndist leikurinn af hinum ótrúlegustu mistökum beggja liða. Valsarar töpuðu boltanum oft illa með engan í marki en Frömurum gekk misvel að refsa og hittu gjarnan ekki á tómt markið. Kristín Guðmundsdóttir og Morgan Marie Þorkelsdóttir voru markahæstar hjá Val með fimm mörk hvor.

Karen Knútsdóttir bar þó af í leiknum og skoraði sjö mörk, mest allra, og sóttu Framarar að lokum torsóttan en kærkomin sigur til að jafna Valsara á toppnum en bæði lið eru nú með 30 stig.

Fram 23:19 Valur opna loka
60. mín. Karen Knútsdóttir (Fram) skorar úr víti
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert