Leik ÍBV og FH frestað

Leik ÍBV og FH hefur verið frestað.
Leik ÍBV og FH hefur verið frestað. mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari

Toppslag ÍBV og FH í Olísdeild karla í handbolta sem fram átti að fara í Vestmannaeyjum í dag hefur verið frestað. Ástæða frestunarinnar er sú að flugi FH-inga var aflýst vegna ófærðar. Þetta kemur fram á heimasíðu HSÍ. 

Ekki hefur verið ákveðið hvenær reyna á að láta leikinn fara fram, en mbl.is mun færa fréttir af því um leið og sú ákvörðun liggur fyrir.

Þrír aðrir leikir fara fram i deildinni í dag, það eru leikir Hauka og Víkings sem hefst klukkan 17.00, Aftureldingar og Fjölnis sem hefst klukkan 19.30 og Fram og Vals sem hefst klukkan 20.00. 

Leikjum Aftureldingar og Fjölnis og Fram og Vals verður lýst í beinni textalýsingu á mbl.is. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert