Áki framlengir við KA

Áki Egilsnes.
Áki Egilsnes. Skapti Hallgrímsson

Færeyski landsliðsmaðurinn Áki Egilsnes hefur framlengt samning sinn við 1. deildarlið KA um tvö ár. Þetta kemur á vefsíðu Handknattleikssambands Færeyja.

Áki er markahæsti leikmaður KA í 1. deildinni á tímabilinu en liðið er þar í harðri baráttu um að komast í efstu deild. 

Fram kemur í fréttinni að Áka líki vistin vel hjá þeim gulklæddu og aðstæðurnar hjá liðinu séu til fyrirmyndar.

KA er í 2. sæti og fer væntanlega í umspil um sæti í úrvalsdeildinni en erkifjendur þeirra á Akureyri eru tveimur stigum á undan þeim í toppsætinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert