Guðjón með enn einn stórleikinn

Guðjón Valur Sigurðsson.
Guðjón Valur Sigurðsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Guðjón Valur Sigurðsson skoraði sjö mörk úr 10 skotum fyrir Rhein-Neckar Löwen sem vann öruggan 36:26-sigur á Gummersbach í efstu deild þýska handboltans í kvöld. Alexander Petersson komst ekki á blað markaskorara í kvöld. Löwen hefur 40 stig í 1. sæti eftir 23 leiki.

Bjarki Már Elísson komst ekki á blað er Füchse Berlín tapaði stórt, 29:21, gegn Flensburg í leik liðanna við toppinn. Flensburg hefur 40 stig á toppnum líkt og Löwen en eftir 25 leiki. Bjarki Már og félagar hafa 38 stig eftir 24 leiki.

Alfreð Gíslason og lærisveinar hans í Kiel höfðu svo betur, 29:24, gegn Erlangen, liðsmönnum Aðalsteins Eyjólfssonar. Kiel hefur 33 stig í 6. sætinu en Erlangen 16 stig í 13. sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert