Aron skoraði sigurmark úr aukakasti

Aron Pálmarsson var hetja Barcelona.
Aron Pálmarsson var hetja Barcelona. Ljósmynd/twitter

Aron Pálmarsson var hetja Barcelona í 30:29-útisigri á Atlético Valladolid í A-deild Spánar í handbolta í dag. Aron skoraði sigurmarkið beint úr aukakasti eftir að leiktíminn rann út. Aron átti góðan leik og skoraði sex mörk úr átta skotum.

„Þetta er ástæðan fyrir að við fengum hann til okkar. Hann skoraði ekki bara markið, heldur lék hann líka gríðarlega vel undir lokin," sagði Víctor Tomás, fyrirliði Barcelona eftir leik. 

Aron og félagar eru með mikla yfirburði í deildinni og með 12 stiga forskot á Ademar León sem er í 2. sæti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert