Þýska handknattleiksliðið Kiel, undir stjórn Alfreðs Gíslasonar, er í góðri stöðu í einvígi sinu við Stefán Rafn Sigurmannsson og ungverska liðið Pick Szeged í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Kiel vann fyrri leik liðanna á heimavelli í kvöld, 29:22.
Staðan var hnífjöfn í hálfleik, 14:14. Eftir hlé náði Kiel hins vegar smátt og smátt frumkvæðinu í leiknum og byggði upp forskot sitt. Þegar yfir lauk munaði sjö mörkum á liðunum, lokatölur 29:22. Marko Vujin var markahæstur á vellinum en hann skoraði átta mörk fyrir Kiel. Stefán Rafn skoraði þrjú mörk fyrir Pick Szeged; öll úr vítaskotum.
Liðin mætast á ný í Ungverjalandi í næstu viku en Stefán Rafn og félagar munu þá þurfa að gefa allt sitt til þess að snúa blaðinu við í einvíginu um átta liða úrslitin.