Einum sigri frá meistaratitlinum

Aron Pálmarsson.
Aron Pálmarsson. Ljósmynd/twitter

Aron Pálmarsson og félagar hans í Barcelona eru einum sigri frá því að tryggja sér Spánarmeistaratitilinn í handknattleik.

Barcelona burstaði Cangas á heimavelli sínum í gærkvöld, 36:21. Aron skoraði 2 mörk í leiknum en hornamaðurinn Valero Rivera fór á kostum og skoraði 13 mörk.

Þegar sjö umferðir eru eftir af deildinni er Barcelona með 12 stiga forskot á Ademar Leon og með sigri gegn Cuenca í næstu viku tryggja Börsungar sér Spánarmeistaratitilinn í 25. sinn og áttunda árið í röð.

Aron og samherjar hans verða næst í eldlínunni á sunnudaginn en þá sækja þeir franska liðið Montpellier heim í fyrri viðureign liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert