Århus fékk Álaborg í heimsókn í dönsku A-deildinni í handbolta í kvöld. Svo fór að Álaborg vann, 24:20. Ómar Ingi Magnússon var markahæstur í liði Århus með sex mörk.
Sigvaldi Guðjónsson bætti við sex mörkum fyrir Århus en Róbert Gunnarsson komst ekki á blað. Hjá Álaborg komst hvorki Arnór Atlason né Janus Daði Smárason á blað, en Aron Kristjánsson þjálfar liðið.
Álaborg er í 5. sæti með 30 stig og Århus í 6. sæti með 23 stig.