Sveinbjörn Sævar Ragnarsson, hinn 73 ára gamli markmaður Hvíta riddarans, gerði sér lítið fyrir og skoraði eitt af mörkum liðsins í 34:21-tapi gegn Þrótti í lokaumferð Grill 66 deild karla í handbolta í kvöld. Hann fékk að spila síðustu sókn liðsins og var hann ekki lengi að láta að sér kveða.
Þrátt fyrir markið endar Hvíti riddarinn á botni deildarinnar, án stiga. Þróttur mætur hins vegar HK í umspili og sigurvegarinn úr því einvígi mætir KA í úrslitaeinvígi um sæti í efstu deild. KA hafnar í 2. sæti deildarinnar með 30 stig og situr liði hjá í fyrstu umferð umspilsins og fer því beint í úrslitaeinvígið. KA hafði betur gegn Val U á heimavelli, 26:22 í kvöld.