Þrír leikmenn úrskurðaðir í bann

Þrándur Gíslason Roth er hér að skora fyrir ÍR í …
Þrándur Gíslason Roth er hér að skora fyrir ÍR í leiknum gegn ÍBV en Þrándur var einn þeirra fjögurra leikmanna sem fékk að líta rauða spjaldið. mbl.is/Árni Sæberg

Elliði Snær Viðarsson, leikmaður ÍBV, og Halldór Logi Árnason, leikmaður ÍR, voru í dag úrskurðaðir í eins leiks bann á fundi aganefndar HSÍ.

Fjögur rauð spjöld fóru á loft í öðrum leik ÍR og ÍBV í átta liða úrslitum úrvalsdeildar karla í handknattleik þegar liðin áttust við á heimavelli ÍR í gær.

Elliði Snær og Halldór Logi hlutu báðir útilokun með skýrslu vegna grófs brots og var niðurstaða aganefndarinnar að úrskurða þá í eins leiks bann. ÍR-ingar eru komnir í sumarfrí en Elliði missir af fyrsta leik Eyjamanna í undanúrslitunum.

ÍR-ingarnir Sturla Ásgeirsson og Þrándur Gíslason Roth fengu einnig að líta rauða spjaldið en með tilvísun í 10. grein reglugerðar HSÍ um agamál var það niðurstaða aganefndar að ekki skuli aðhafst frekar vegna máls þeirra. Sturla hlaut útilokun með skýrslu fyrir að skjóta í höfuð markvarðar í vítakasti en Þrándur hlaut útilokun með skýrslu vegna grófs leikbrots.

Þá var Ana Blagosevic, leikmaður kvennaliðs HK, úrskurðuð í tveggja leikja bann en hún hlaut útilokun með skýrslu vegna grófs brots í leik Gróttu og HK í umspili um sæti í Olís-deildinni um nýliðna helgi. Niðurstaða aganefndar er að leikmaðurinn er úrskurðaður í tveggja leikja bann, m.a. að teknu tilliti til ítrekunaráhrifa.

Blagosevic verður þar með fjarri góðu gamni í næstu tveimur leikjum liðanna en HK vann fyrsta leikinn á útivelli, 25:24.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert