Aron kominn á sjúkralista

Aron Pálmarsson á æfingu hjá Barcelona.
Aron Pálmarsson á æfingu hjá Barcelona. Twitter FCB

Handknattleiksmaðurinn Aron Pálmarsson meiddist snemma leiks í viðureign Barcelona og Zamora í spænsku 1.deildinni í handknattleik um nýliðna helgi. Talið er að Aron geti orðið frá um nokkurt skeið af  þessum sökum ef marka má frétt á heimasíðu Barcelona í morgun.

Hugsanlegt er talið að hann leiki ekki meira með Barcelona en liðið hefur fyrir nokkru tryggt sér spænska meistaratitilinn auk þess sem það er úr leik í Meistaradeild Evrópu. 

Meiðsli Arons er í hægri kálfa og varð hann fyrir þeim á upphafsmínútum leiksins og kom af þeim sökum ekki meira við sögu í leiknum. Við skoðun hjá læknateymi Barcelona í morgun kom í ljós að meiðslin eru alvarlegri en talið var í fyrstu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert