Lugi jafnaði metin gegn Svíþjóðarmeisturum Kristianstad í 1:1 í undanúrslitunum um sænska meistaratitilinn í handknattleik karla í Lundi í kvöld með sigri í hörkuspennandi leik, 26:25.
Arnar Freyr Arnarsson skoraði tvö mörk fyrir Kristianstad, Ólafur Guðmundsson eitt en Gunnar Steinn Jónsson ekkert. Stig Moen Nielsen var í aðalhlutverki og skoraði 10 mörk fyrir liðið.
Þriðji leikur liðanna fer fram í Kristianstad á föstudagskvöldið og sá fjórði í Lundi á sunnudagskvöld en þrjá sigra þarf til að komast í úrslitin.