Rúnar Sigtryggsson tekur við Stjörnunni

Rúnar Sigtrygsson
Rúnar Sigtrygsson Ljósmynd/Balingen-Weilstetten

Handknattleiksdeild Stjörnunnar hefur gengið frá ráðningu Rúnars Sigtryggssonar og verður hann næsti þjálfari karlaliðs félagsins. Rúnar skrifar undir þriggja ára samning. 

Rúnar er á leiðinni heim frá Þýskalandi, þar sem hann hefur þjálfað síðan 2012, fyrst í fjögur ár hjá EHV Aue og 16 mánuði með HBW Balingen.

„Við hjá Stjörnunni erum afar ánægð með þessa ráðningu, og væntum mikils af Rúnari sem tekur við góðu búi af Einari Jónssyni og Vilhjálmi Halldórssyni.

Við viljum þakka Einari Jónssyni fyrir þann tíma sem hann hefur verið hjá okkur og óskum við honum velfarnaðar á nýjum vígstöðum, einnig Vilhjálmi Halldórssyni sem hefur aðstoðað Einar í vetur og undafarin ár þökkum við fyrir frábært starf fyrir félagið," segir í tilkynningu sem félagið sendi frá sér í dag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert