Þurfum frábæran leik til að vinna þá

Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfari FH.
Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfari FH. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Þetta var örugglega frábær leikur fyrir áhorfendur, fullt hús og gríðarlega skemmtilegt í raun og veru. En auðvitað er súrt að ná ekki að landa þessu, vorum með leikinn í höndunum og höfðum síðustu sóknina til þess að klára leikinn,“ sagði Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfari FH, í samtali við mbl.is eftir tapið gegn Selfossi í kvöld.

Liðin mættust í fyrsta leik sínum í undanúrslitaeinvíginu á Íslandsmóti karla í handbolta og það var heldur betur boðið upp á skemmtun í Vallaskóla á Selfossi. Selfoss sigraði að lokum 36:34 eftir framlengdan leik.

„Það er auðvitað dýrt að missa Gísla út úr leiknum, sérstaklega þegar við erum komnir út í svona langan leik. Við erum búnir að vera með menn í meiðslum, Ísak gat bara spilað vörn, Jóhann Birgir búinn að vera meiddur líka og Ágúst Birgisson enn þá meiddur og vonandi getum við notað hann eitthvað í þessu einvígi. Auðvitað þynnist hópurinn þannig og það er erfitt þegar við erum komnir svona langt inn í leikinn. Við gefum samt allt of mikið eftir,“ sagði Halldór enn fremur. 

Gísli Þorgeir Kristjánsson fékk beint rautt spjald snemma leiks fyrir að brjóta á Árna Steini Steinþórssyni sem stökk inn úr hægra horninu. Árni Steinn kom ekki meira við sögu í leiknum. Hvað fannst Halldóri um dóminn? 

„Ég á eftir að sjá það betur. En allt í einu kom þessi lína núna, ég skil það ekki. Hvað væri þá búið að gefa mörg svona rauð spjöld í vetur, ég átta mig ekki alveg á því. Hvað þá með þegar Jóhann Birgir er hamraður í seinni hálfleik í framlengingunni? Svo finnst mér margt skrítið, við fáum eitt víti og þeir fá sex víti. Þeir spila mjög framarlega á okkur og eru oft að teika okkur og það er bara margt í þessu sem ég þarf að skoða. Það eru litlir hlutir líka, þegar er verið að spila svona framarlega í vörn þá er verið að ýta í hliðina á mönnum og menn eru að taka skot og fá kannski ekki neitt. Það dregur svolítið úr manni tennurnar þegar líður á leikinn. En mér fannst halla svolítið á vítadómana, ég verð að viðurkenna það.“ 

Þrátt fyrir fjarveru Gísla sló ekkert af FH sem náði fimm marka forskoti í seinni hálfleik. Jóhann Birgir Ingvarsson kom inn af krafti og Óðinn Þór Ríkharðsson var sömuleiðis öflugur í sókninni.

„Það er rútína í liðinu okkar og Jóhann Birgir er góður handboltamaður. Hann kemur inn og þekkir system-ið okkar og gerir þetta mjög vel. Það kemur alltaf maður kemur í manns stað en þegar líður langt á leikinn þá hefði verið gott að hafa Gísla. En mér fannst við gefa allt of mikið eftir varnarlega,“ sagði Halldór Jóhann og bætti við að FH þurfi frábæran leik til þess að vinna Selfoss.  

„Á þetta ekki að vera svona? Þú ert kominn í undanúrslit í Íslandsmóti, þetta á að vera það skemmtilegasta sem þú gerir, þannig að auðvitað á þetta að vera svona. Þetta eru tvö frábær lið, þetta féll Selfossmegin í dag. Við þurfum að spila frábæran leik til þess að vinna þá. Það er bara næsta verkefni og það er það verkefni sem skiptir mestu máli og við sjáum ekkert lengra eða hugsum ekkert lengra en það.“ 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert