Sjötti deildarsigur Alfreðs í röð

Alfreð Gíslason
Alfreð Gíslason Ljósmynd/THW Kiel

Kiel vann í kvöld sinn sjötta sigur í röð í þýsku A-deildinni í handbolta er liðið heimsótti Leipzig. Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar voru með yfirburði og unnu sannfærandi 28:16-sigur. 

Nikola Bilyk skoraði sex mörk fyrir Kiel og Ole Rahmel og Lukas Nilsson bættu við fimm mörkum hvor. Kiel er í 5. sæti deildarinnar með 43 stig og í mikilli baráttu um Evrópusæti á næstu leiktíð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert