Afsökunarbeiðni frá Gróttu

Frá viðureign Gróttu og ÍBV í Olís-deildinni í vetur.
Frá viðureign Gróttu og ÍBV í Olís-deildinni í vetur. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Íþróttafélagið Grótta á Seltjarnesi hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem handknattleiksdeild Gróttu biður Þorgeir Bjarka Davíðsson einlægrar afsökunar.

Fréttatilkynning frá Gróttu;

Íþróttafélagið Grótta hefur lagst í gagngerar endurbætur á eineltisstefnu félagsins og verkferlum þar að lútandi. Veigamikil og þörf vitundarvakning hefur átt sér stað í þjóðfélaginu í ljósi #metoo umræðunnar og telur félagið mikilvægt að fylgja því eftir með endurskoðun á öllum verkferlum. Sú endurskoðun er einnig gerð í ljósi aðstæðna  sem upp komu hjá félaginu fyrir nokkrum árum. Um er að ræða aðstæður sem leiddu til þess að leikmaður, Þorgeir Bjarki Davíðsson sá sér ekki fært að vera áfram hjá félaginu. Harmar félagið að ekki skuli hafa verið nógu vel staðið að hans máli á sínum tíma og biður Þorgeir Bjarka einlæglega afsökunar á því. Leggur félagið ríka áherslu á að komi slík mál upp í framtíðinni verði réttum boðleiðum fylgt. Eru fyrirhugaðar breytingar gerðar í samræmi við reglugerð um einelti, kynferðislega áreitni, kynbundið áreiti og ofbeldi á vinnustöðum nr. 1009/2015.

Grótta vill ítreka að óæskileg hegðun sem fellur undir ofangreinda reglugerð verður ekki liðin innan félagsins og að komi slík mál upp verði þau tekin alvarlega og sett í viðeigandi farveg. Þetta á jafnt við um starfsmenn íþróttafélagsins, íþróttaiðkendur og sjálfboðaliða. Hefur félagið fengið til liðs við sig fagaðila til að endurskoða alla ferla og mun einnig óska eftir aðkomu og áliti félagsmanna, foreldra og starfsfólks við þá vinnu. Mikilvægt er að opin umræða sé um einelti, áreitni og afleiðingar þess og er það ósk félagsins að hægt verði að fyrirbyggja slíkt hjá félaginu í framtíðinni. Með endurbótunum er verið að tryggja að komi slík mál upp hjá félaginu sé skýrt í hvaða farveg þau fari og að haldið verði fast utan um slík mál og þau leidd til lykta.

Bragi Björnsson

Formaður aðalstjórnar Gróttu

 Elín Smáradóttir

Fyrrverandi formaður aðalstjórnar Gróttu

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert