Úrslitaeinvígið hófst á jafntefli

Tandri Már Konráðsson
Tandri Már Konráðsson Ljósmynd/heimasíða Skjern

Deildarmeistarar Skjern og Bjerringb­ro-Sil­ke­borg gerðu 29:29 jafntefli í fyrsta leik liðanna í úrslitaeinvíginu um danska meistaratitilinn í handknattleik í dag.

Tandri Már Kon­ráðsson og félagar í Skjern komust í 1:0 á þriðju mínútu leiksins áður en gestirnir jöfnuðu í næstu sókn. Var þetta í fyrsta og eina skipti sem deildarmeistararnir höfðu forystu í leiknum en gestirnir voru þremur mörkum yfir í hálfleik og mest fimm mörkum yfir alls.

Liðin mætast næst á heimavelli Bjerringbro-Silkeborg þann 29. maí.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert