Kristján og Kolbeinn í ÍBV

Kristján Örn Kristjánsson og Kolbeinn Aron Arnarsson með Davíð Þór …
Kristján Örn Kristjánsson og Kolbeinn Aron Arnarsson með Davíð Þór Óskarssyni, formanni handknattleiksdeildar ÍBV. Ljósmynd/ÍBV

Handboltamennirnir Kristján Örn Kristjánsson og Kolbeinn Aron Arnarsson skrifuðu í dag undir samninga við ÍBV. Kolbeinn lék með Aftureldingu á síðustu leiktíð en hefur þess fyrir utan leikið með ÍBV allan ferilinn. Kolbeinn gerði þriggja ára samning við ÍBV.

Kristján Örn eða Donni, er ein öflugasta örvhenta skytta úrvalsdeildarinnar og skrifaði hann undir tveggja ára samning. Hann er uppalinn Fjölnismaður og hefur spilað með Fjölni allan sinn feril. Donni var mikilvægur í liði Fjölnis í vetur og skoraði 154 mörk í 22 leikjum eða 7 mörk að meðaltali í leik.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert