Erlingur hafði betur gegn Kristjáni

Erlingur Richardsson.
Erlingur Richardsson. mbl.is/Eva Björk Ægisdóttir

Holland vann nauman 25:24-heimasigur á Svíþjóð í fyrri leik liðanna í undankeppni heimsmeistaramótsins í handknattleik sem fram fer í Danmörku og Þýskalandi á næsta ári.

Erlingur Richardsson er þjálfari hollenska landsliðsins en samlandi hans Kristján Andrésson þjálfar Svíþjóð. Leikurinn var hnífjafn en heimamenn í Hollandi náðu forystunni snemma leiks og héldu henni til enda.

Liðin mætast aftur á miðvikudaginn kemur í Svíþjóð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert