Lærisveinar Patreks í fínum málum

Patrekur Jóhannesson
Patrekur Jóhannesson mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari

Lærisveinar Patreks Jóhannessonar í austurríska landsliðinu í handbolta eru í fínum málum eftir 28:28-jafntefli við Hvíta-Rússland á útivelli í fyrri leik liðanna í umspili um sæti á HM í Danmörku og Þýskalandi í byrjun næsta árs.

Staðan í hálfleik var 15:15, en Austurríki skoraði fimm af fyrstu sex mörkum síðari hálfleiks og komst í 20:16. Hvíta-Rússland var hins vegar betri aðilinn í lokin og náði að tryggja sér jafntefli. 

Síðari leikur þjóðanna fer fram í Austurríki á miðvikudaginn kemur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert