Guðmundur skipti Theodóri inn fyrir Ragnar

Theodór Sigurbjörnsson, ÍBV, hefur verið kallaður inn í landsliðið fyrir …
Theodór Sigurbjörnsson, ÍBV, hefur verið kallaður inn í landsliðið fyrir síðari leikinn við Litháen í kvöld. mbl.is/Árni Sæberg

Guðmundur Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari karla í handknattleik, hefur gert eina breytingu á landsliðinu sem mætir Litháen í undankeppni heimsmeistaramótsins í Laugardalshöll í kvöld frá fyrri viðureign þjóðanna sem fram fór í Vilníus á föstudaginn. 

Eyjamaðurinn Theodór Sigurbjörnsson kemur inn í hópinn í staðinn fyrir Ragnar Jóhannsson. 

Hinir 15 leikmenn íslenska liðsins í kvöld tóku þátt í fyrri leiknum og eru þeir allir klárir í slaginn en úrslit leiksins í kvöld skera úr um hvort það verður íslenska eða litháska landsliðið sem tryggir sér farseðilinn á HM sem fram fer í Þýskalandi og Danmörku í janúar. 

Fyrri viðureign Íslendinga og Litháen lauk með jafntefli, 27:27.

Flautað verður til leiks í Laugardalshöll klukkan 20 í kvöld en húsið verður opnað klukkustund fyrr. Að sögn Bjarka Sigurðssonar, markaðsstjóra HSÍ, hefur sala aðgöngumiða á leikinn gengið vel og má reikna með mikilli stemningu eins og endranær á landsleikjum í Laugardalshöllinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert