Yfirgefur Stjörnuna

Ramune Pekarskyte lyftir sér upp gegn vörn Vals í leik …
Ramune Pekarskyte lyftir sér upp gegn vörn Vals í leik Stjörnunnar og Vals á síðasta vetri. mbl.is/Árni Sæberg

Handknattleikskonan Ramune Pekarskyte leikur ekki áfram með Stjörnunni á næsta keppnistímabili. Hún gekk til liðs við Stjörnuna fyrir ári og var markahæsti leikmaður liðsins í vetur sem leið. Engu að síður var ekki vilji meðal forráðamanna Stjörnunnar að endurnýja samninginn við Ramune, eftir því sem heimildir Morgunblaðsins herma.

Óvíst hvað Ramune tekur sér fyrir hendur á næsta keppnistímabili en hálfur annar áratugur er síðan hún kom fyrst til landsins. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert