Þjóðverjar burstuðu lærisveina Dags

Dagur Sigurðsson
Dagur Sigurðsson mbl.is/Eggert Jóhannesson

Japan tók á móti Þýskalandi í vináttulandsleik í handknattleik karla í nótt og tapaði með níu marka mun, 31:22.

Fyrirliði Þjóðverja, Uwe Gensheimer, fór fyrir sínum mönnum og var markahæstur með átta mörk en það var nokkuð ljóst frá byrjun að ógnarsterkt lið Þýskalands myndi hafa betur. Staðan var orðin 18:9-í hálfleik.

Dagur Sigurðsson þjálfar japanska landsliðið sem mun taka þátt í heims­meist­ara­mót­inu í hand­knatt­leik karla sem fram fer í Dan­mörku og Þýskalandi í janú­ar á næsta ári 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert