Íslandsmeistararnir krækja í Erlu Rós

Erla Rós Sigmarsdóttir ásamt Guðmundi Þór Jónssyni hjá Fram.
Erla Rós Sigmarsdóttir ásamt Guðmundi Þór Jónssyni hjá Fram. Ljósmynd/Fram

Íslandsmeistarar Fram  í handknattleik kvenna hafa gert samning við Erlu Rós Sigmarsdóttur markvörð. Hún kemur í Safamýrina frá ÍBV. Erlu Rós er ætlað að fylla skarð Guðrúnar Óskar Maríasdóttur sem nýverið gekk til liðs við Stjörnuna. 

Erla Rós er 21 árs og hefur leikið með ÍBV allan sinn feril. Hún er dóttir Sigmars Þrastar Óskarssonar fyrrverandi landsliðsmarkvarðar. 

Erla Rós lék 19 af 21 leik með ÍBV í Olísdeildinni á síðustu leiktíð. Hún var valin í landsliðshópinn sem tilkynnt var um fyrr í vikunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert