FH fær serbneskan markmann

FH hefur samið við serbneska markvörðinn Lazar Minic.
FH hefur samið við serbneska markvörðinn Lazar Minic.

Handknattleiksdeild FH hefur gert samning við serbneska markvörðinn Lazar Minic. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem barst nú rétt fyrir hádegi. 

Lazar Minic er 23 ára gamall og hefur spilað í heimalandinu undanfarin tímabil við góðan orðstír. Hjá FH mun hann mynda markvarðapar með Birki Fannari Bragasyni á næsta tímabili. Honum er ætlað að fylla skarð Ágústs Elís Björg­vins­sonar sem fór til Sävehof eftir síðasta tímabil.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert