Valþór Atli til Akureyrar

Valþór Atli Guðrúnarson t.h. í leik með Akureyri handboltafélagi. Hann …
Valþór Atli Guðrúnarson t.h. í leik með Akureyri handboltafélagi. Hann er kominn til liðsins á ný eftir tveggja ára veru hjá ÍR. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Valþór Atli Guðrúnarson er genginn til liðs við Akureyri handboltafélag að nýju eftir tveggja ára dvöl hjá ÍR.

„Valþór Atla þarf vart að kynna fyrir stuðningsmönnum Akureyrar enda er hann uppalinn í Þorpinu og hefur leikið 45 leiki fyrir Akureyri handboltafélag í efstu deild. Hann var í lykilhlutverki hjá liðinu tímabilið 2013-2014 þegar Akureyri hafnaði í 6. sæti Olís-deildarinnar.

Valþór Atli er 27 ára gamall leikstjórnandi sem getur einnig spilað vinstri skyttu.

Hann hefur verið á mála hjá ÍR undanfarin tvö ár og var lykilmaður hjá Breiðhyltingum tímabilið 2016-2017 þegar ÍR vann sér sæti í efstu deild. Á síðustu leiktíð kom Valþór lítið við sögu vegna meiðsla,“ segir í tilkynningu á heimasíðu Akureyrar handboltafélags. 

Valþór Atli Guðrúnarson t.v. handsalar samning við Þorvald Sigurðsson, varaformann …
Valþór Atli Guðrúnarson t.v. handsalar samning við Þorvald Sigurðsson, varaformann Akureyrar handboltafélags. Ljósmynd/Akureyri handboltafélag
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert