Með átta mörk að meðaltali

Arnór Þór Gunnarsson fagnar marki með Bergischer.
Arnór Þór Gunnarsson fagnar marki með Bergischer. Ljósmynd/www.bhc06.de

Landsliðsmaðurinn Arnór Þór Gunnarsson er annar markahæsti leikmaðurinn í þýsku 1. deildinni í handknattleik.

Arnór Þór skoraði 5 mörk fyrir Bergischer í gær þegar liðið vann stórsigur á Lemgo 35:26. Arnór hefur þar með skorað 40 mörk í fimm leikjum með nýliðunum eða 8 mörk að meðaltali í leik.

Mattias Musche úr Magdeburg er markahæstur í deildinni með 55 mörk en hann hefur spilað einum leik meira en Arnór. Þriðji á markalistanum er Jannik Kohlbacker úr Rhein-Neckar Löwen en hann hefur skorað 32 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert