Meistararnir byrjuðu á sigri

Ragnheiður Júlíusdóttir skoraði sjö mörk.
Ragnheiður Júlíusdóttir skoraði sjö mörk. mbl.is/Árni Sæberg

Íslandsmeistarar Fram fara vel af stað í Olísdeild kvenna í handbolta. Framarar gerðu góða ferð á Selfoss í kvöld og lögðu heimakonur 30:24, en staðan í hálfleik var 15:13, Fram í vil. 

Ragnheiður Júlíusdóttir var markahæst í liði Fram með sjö mörk, Steinunn Björnsdóttir gerði sex og Þórey Rósa Stefánsdóttir bætti við fimm mörkum.

Hjá Selfossi var Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir markahæst með átta mörk og er hún komin almennilega af stað á ný eftir erfið meiðsli. Kristrún Steinþórsdóttir og Perla Rut Albertsdóttir skoruðu sex mörk hvor. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert