Esbjerg í undanúrslit bikarkeppninnar

Rut Jónsdóttir komst ekki á blað hjá Esbjerg í kvöld.
Rut Jónsdóttir komst ekki á blað hjá Esbjerg í kvöld. mbl.is/Styrmir Kári

Rut Jónsdóttir komst ekki á blað hjá Esbjerg sem vann 25:24-sigur eftir framlengdan leik gegn Viborg í 8-liða úrslitum dönsku bikarkeppninnar í handknattleik í Viborg í kvöld. Leikurinn var afar jafn og spennandi og var staðan 11:10, Viborg í vil, þegar flautað var til hálfleiks.

Þegar nokkrar mínútur voru eftir af leiknum hafði Viborg tveggja marka forskot en Esbjerg gafst ekki upp og jafnaði leikinn á lokamínútunum og staðan 21:21. Í framlengingunni hafði Esbjerg betur og Rut Jónsdóttir og liðsfélagar hennar eru því komnar áfram í undanúrslit bikarkeppninnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert