Þetta er eins og draumur

Ásgeir Snær Vignisson átti góðan leik fyrir Val.
Ásgeir Snær Vignisson átti góðan leik fyrir Val. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Þetta var mjög flott í kvöld, það virkaði eiginlega allt sem við reyndum,“ sagði hinn 19 ára gamli Ásgeir Snær Vignisson í samtali við mbl.is eftir afar sannfærandi 37:21-sigur Vals á Stjörnunni í Olísdeildinni í handbolta í kvöld. 

„Það var gott tempó á okkur. Við byrjuðum fyrstu 15 mínúturnar á 100 og eftir það róaðist þetta aðeins, en það var ekki spurning hvort við myndum klára þetta.“

Ásgeir kom sterkur inn í síðari hálfleik og varð að lokum markahæstur með sex mörk, ásamt Alexander Erni Júlíussyni og Agnari Smára Jónssyni. 

„Þetta er eins og draumur. Ég hef alltaf verið hjá Val og það er frábært að spila með meistaraflokki. Ég er mjög sáttur með tímabilið til þessa, við bætum okkur með hverjum leiknum,“ sagði Ásgeir Snær. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert