Óskar skoraði í sigri

Óskar Ólafsson skoraði eitt mark fyrir Drammen í öruggum sigri.
Óskar Ólafsson skoraði eitt mark fyrir Drammen í öruggum sigri. Ljósmynd/Drammen

Óskar Ólafsson skoraði eitt mark úr einu skoti þegar Drammen vann 33:25-heimasigur gegn Bodø í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik í dag. Staðan að loknum fyrri hálfleik var 18:11, Drammen í vil.

Gestunum í Bodø tókst aldrei að vinna þann mun niður en mest náðu þeir að minnka forskot Drammen í sex mörk í upphafi seinni hálfleiks en lengra komust þeir ekki. Drammen fer vel af stað í norsku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð en liðið er í fimmta sæti deildarinnar með 6 stig eftir fyrstu fimm leiki sína. Þremur stigum minna en topplið Arendal.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert