Sterkur sigur Þórs/KA á Selfossi

Martha Hermannsdóttir skoraði átta mörk.
Martha Hermannsdóttir skoraði átta mörk. Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason

Nýliðar KA/Þórs unnu sterkan 23:18-sigur á Selfossi á útivelli í Olísdeild kvenna í handbolta í kvöld. Martha Hermannsdóttir skoraði átta mörk fyrir Akureyrarliðið. 

KA/Þór náði forystunni snemma leiks og hélst hún út allan leikinn. Staðan í hálfleik var 13:9 og skoraði Þór/KA fyrstu þrjú mörkin í síðari hálfleik sem lagði gruninn að góðum sigri. 

Katrín Vilhjálmsdóttir skoraði fjögur mörk fyrir KA/Þór eins og Hulda Bryndís Tryggvadóttir. Sarah Boye Sörensen skoraði mest fyrir Selfoss eða sex mörk og Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir bætti við fjórum mörkum. 

Með sigrinum fór KA/Þór upp að hlið hinna nýliðanna í ár, HK, og eru liðin með fjögur stig í fjórða og fimmta sæti. Selfoss er á botninum með aðeins eitt stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert