Teitur var óstöðvandi

Teitur Örn Einarsson í treyju Kristianstad.
Teitur Örn Einarsson í treyju Kristianstad. Ljósmynd/Kristianstad

Teitur Örn Einarsson fór á kostum fyrir sænska meistaraliðið Kristianstad þegar liðið vann öruggan útisigur á Önnereds, 36:25, í úrvalsdeildinni í handknattleik þar í landi í kvöld.

Teitur skoraði níu mörk fyrir Kristianstad og var markahæstur á vellinum. Arnar Freyr Arnarsson skoraði ekki fyrir Kristianstad, sem var sjö mörkum yfir í hálfleik 19:11. Ólafur Guðmundsson var ekki á skýrslu hjá liðinu í kvöld.

Kristianstad er með fullt hús stiga eftir sex leiki í sænsku úrvalsdeildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert