Íslandsmeistararnir fara í Digranesið

Þórey Rósa Stefánsdóttir hornamaður Fram og landsliðsins.
Þórey Rósa Stefánsdóttir hornamaður Fram og landsliðsins. mbl.is/Hari

Þrír leikir fara fram í Olís-deild kvenna í handknattleik í kvöld en HK fær Íslands- og bikarmeistara Fram í heimsókn í Digranesið. 

Leikurinn hefst klukkan 19:30. Á sama tíma eigast við Valur og Selfoss á Hlíðarenda. Leikur KA/Þórs og Stjörnunnar er á dagskrá öllu fyrr eða klukkan 18:15 á Akureyri. 

Fram er í efsta sæti með fullt hús stiga eftir fjóra leiki en Valur og ÍBV koma næst með 5 stig. Selfoss er eina liðið í deildinni sem er án sigurs eftir fjóra leiki en getur bætt úr því í kvöld. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert