Nýliðarnir upp í annað sæti

Sólveig Lára Kristjánsdóttir skoraði níu mörk í kvöld.
Sólveig Lára Kristjánsdóttir skoraði níu mörk í kvöld. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Nýliðar KA/Þórs unnu í kvöld góðan 23:19-sigur á Stjörnunni í Olísdeild kvenna í handbolta. Staðan í hálfleik var 14:8, KA/Þór í vil. 

Sólveig Lára Kristjánsdóttir var sterk hjá KA/Þór og skoraði hún níu mörk og Martha Hermannsdóttir bætti við sex. Hjá Stjörnunni skoruðu þær Hanna Guðrún Stefánsdóttir og Elísabet Gunnarsdóttir fimm mörk hvor.

Með sigrinum fór KA/Þór upp í annað sæti deildarinnar þar sem liðið er með sex stig, tveimur minna en Íslandsmeistarar Fram. Stjarnan er hins vegar í næstneðsta sæti með aðeins þrjú stig.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert