Viggó atkvæðamikill í sigri

Viggó Kristjánsson fór mikinn í liði West Wien í dag.
Viggó Kristjánsson fór mikinn í liði West Wien í dag. Ljósmynd/Handball-westwien.at

Viggó Kristjánsson skoraði fjögur mörk og gaf sjö stoðsendingar fyrir West Wien í öruggum heimasigri liðsins gegn Linz í austurrísku úrvalsdeildinni í handknattleik í dag en leiknum lauk með 33:26-sigri West Wien.

Guðmundur Helgason komst ekki á blað hjá West Wien í leiknum og Ólafur Bjarki Ragnarsson var ekki með West Wien í dag. West Wien er í fimmta sæti deildarinnar með 9 stig eftir átta leiki, þremur stigum minna en topplið Krems en Hannes Jón Jónsson er þjálfari West Wien.

Þá skoraði Ísak Rafnsson 3 mörk fyrir Schwaz sem tapaði á heimavelli 25:24 fyrir HSG Graz. Staðan í hálfleik var 14:12, Schwaz í vil en HSG Graz tók yfirhöndina í leiknum snemma í síðari hálfleik og hélt forystunni allt til enda. Schwaz er í 9. sæti og næst neðsta sæti deildarinnar með 2 stig eftir fyrstu átta umferðirnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert