Eva atkvæðamikil í jafntefli

Eva Björk Davíðsdóttir, skoraði fjögur mörk fyrir Ajax í dag.
Eva Björk Davíðsdóttir, skoraði fjögur mörk fyrir Ajax í dag. mbl.is/Árni Sæberg

Eva Björk Davíðsdóttir skoruðu fjögur mörk fyrir Ajax þegar liðið gerði 22:22-jafntefli við Aarhus United á útivelli í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í dag. Eva gaf tvær stoðsendingar í leiknum en eitt marka hennar kom af vítalínunni.

Eva var markahæst í liði Ajax, ásamt Simone Pedersen og Stine Lönborg, en þær þrjár skoruðu allar fjögur mörk. Staðan í hálfleik var 13:12, Aarhus United í vil. Birna Berg Haraldsdóttir var ekki með Aarhus United í dag.

Aarhus United  er í fjórða sæti deildarinnar með 13 stig eftir fyrstu níu umferðirnar en Ajax er í þrettánda og næst neðsta sæti deildarinnar með 1 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert