Aron sterkur í öruggum sigri Barcelona

Aron Pálmarsson var sterkur í dag.
Aron Pálmarsson var sterkur í dag. mbl.is/Kristinn Magnússon

Aron Pálmarsson átti fínan leik fyrir Barcelona í öruggum 45:31-heimasigri á La Rioja í A-deild Spánar í handbolta í kvöld. Aron skoraði fjögur mörk í úr sex skotum. 

Barcelona er búið að vinna alla níu deildarleiki sína til þessa og er liðið því með 18 stig í toppsætinu, sjö stigum á undan næstu þremur liðum. 

Næsta verkefni Barcelona er gríðarlega erfiður útileikur gegn Vardar í Meistaradeildinni á laugardaginn kemur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert