FH mistókst að fara upp í annað sæti

Alina Molkova skroaði fjögur mörk.
Alina Molkova skroaði fjögur mörk. mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari

Einn leikur var á dagskrá í Grill 66-deild kvenna í handbolta í kvöld. Valur U hafði þá betur gegn FH á útivelli, 32:23, en staðan í hálfleik var 14:14. 

FH hefði farið upp í annað sæti deildarinnar með sigri, en Valsliðið var sterkara í síðari hálfleik og tryggði sér sinn fimmta sigur á leiktíðinni. Valur fór upp fyrir FH og upp í þriðja sæti deildarinnar. 

Heiðrún Berg Sverrisdóttir skoraði sjö mörk fyrir Val og Ída Margrét Stefánsdóttir, Alina Molkova og Auður Ester Gestsdóttir skoruðu fjögur. Sylvía Björt Blöndal skoraði níu mörk fyrir FH. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert