Guðjón fór á kostum í Meistaradeildinni

Guðjón Valur Sigurðsson átti stórleik.
Guðjón Valur Sigurðsson átti stórleik. mbl.is/Kristinn Magnússon

Guðjón Valur Sigurðsson fór á kostum fyrir þýska liðið Rhein-Neckar Löwen í glæsilegum 37:27-heimasigri á Montpellier frá Frakklandi í Meistaradeild Evrópu í handbolta í kvöld.

Guðjón Valur var markahæstur allra með ellefu mörk og skoraði hann sjö af síðustu tólf mörkum liðsins. Alexander Petersson skoraði tvö mörk fyrir Löwen. 

Með sigrinum jafnaði Löwen topplið Barcelona á toppnum á A-riðli með tíu stig, en Barcelona á leik til góða. Vardar er einnig með tíu stig í þriðja sæti og á einnig leik til góða. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert