Annað tap í Hollandi og Valur úr leik

Morgan Marie Þorkelsdóttir var markahæst hjá Val.
Morgan Marie Þorkelsdóttir var markahæst hjá Val. mbl.is/Árni Sæberg

Valur er úr leik í Áskorendakeppni kvenna í handbolta eftir 21:20-tap fyrir Quintus frá Hollandi í öðrum leik liðanna í 3. umferðinni í dag. Hollenska liðið vann fyrri leikinn 24:20 og einvígið 45:40. 

Báðir leikir fóru fram í Hollandi, þar sem Valur seldi heimaleikinn sinn, en leikurinn í dag var skráður heimaleikur Vals.

Morgan Marie Þorkelsdóttir var markahæst hjá Val með sex mörk og þær Sandra Erlingsdóttir og Anna Úrsúla Guðmundsdóttir skoruðu þrjú mörk hvor. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert