ÍBV sannfærandi í Digranesi

Elna Ólöf Guðjónsdóttir úr HK og Sunna Jónsdóttir, ÍBV, í …
Elna Ólöf Guðjónsdóttir úr HK og Sunna Jónsdóttir, ÍBV, í baráttunni í dag. mbl.is/Árni Sæberg

ÍBV vann sannfærandi 31:20-sigur á HK á útivelli í Olísdeild kvenna í handbolta í dag. Staðan í hálfleik var 14:7 og var sigurinn afar öruggur. 

Ester Óskarsdóttir og Karólína Bæhrenz voru sterkar hjá ÍBV og skoruðu sex mörk hvor og Ásta Björt Júlíusdóttir skoraði fimm. Berglind Þorsteinsdóttir skoraði sex fyrir HK og Díana Kristín Sigmarsdóttir fjögur. 

ÍBV fór upp í 13 stig og upp að hlið Vals á toppi deildarinnar, en Valur á leik til góða. HK er í sjötta sæti með sex stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert